06.09 2008
Skemmtilegt verkefni á Ljósanótt 2008
Vegglýsing á Félagsbíói Reykjanesbæ
Búið er að flóðlýsa gamla Félagsbíó í tilefni Ljósanætur en verkefnið er unnið í samstarfi við Vistvæna Orku ehf.
Vistvæn Orka ehf sá um að setja upp lýsinguna sem gerð er með 11 ljóskösturum sem lýsa upp norðurhlið byggingarinnar. Fyrir valinu urðu marglita ljósdíóðukastarar sem hafa þá sérstöðu að hægt er að stjórna litasamsetningunni svo hún breytist hægt úr rauðri lýsingu yfir í græna og bláa og gefur þannig byggingunni skemmtilegan blæ.
Vegglýsingin mun standa fram í febrúar 2009.



www.ljosanott.is/Frettir/2008/573/Vegglysing-a-Felagsbioi/default.aspx





