31.07 2009
Ný aðstaða í tilraunagróðurhúsi LBHÍ að Reykjum, Ölfusi
Ræktunarprófanir með LED ljósdíóðulömpum og athuganir á orkusparnaði meðal helstu verkefna.
Vistvæn Orka ehf og SPROTI Frumkvöðla- og tækniþróunarsetur Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) skrifuðu undir samning í dag um afnot fyrirtækisins að 200m2 rými í tilraunagróðurhúsi LBHÍ að Reykjum, Ölfusi.
Í þessu nýja rými verða gerðar margvíslegar prófanir og mælingar á næstu mánuðum í tengslum við LED ljósdíóðulampa sem fyrirtækið er að þróa.






