03.12 2009
Vistvæn Orka ehf á ráðstefnunni International Algae Congress 2009
Mikill áhugi á samstarfi við fyrirtækið.
Fyrirtækið kynnti á ráðstefnunni LED-IT-GrowTM ljósbúnað og NZγLTM tækni-lausnir fyrirtækisins. Fyrirtækið fékk góðar viðtökur hjá vísindamönnum og sérfræðingum á ráðstefnunni sem var haldin dagana 1. og 2. desember s.l. í Hamborg, Þýskalandi. Sýndu margir mikinn áhuga á samstarfi á ýmsum sviðum smáþörungaræktar og framleiðslu verðmætra afurða með LED ljósdíóðulýsingu og er stefnt að frekari viðræðum í kjölfar ráðstefnunnar.
Ráðstefnan var haldin undir yfirskriftinni "Performance and Potential of Photothropic Aquaculture" og voru mörg fróðleg erindi flutt í tengslum við smáþörungarækt og möguleika á bindingu koldíoxíðs og framleiðslu lífeldsneytis úr smáþörungum.






