Fréttir

  • Rósir koma vel undan vetri
    Mikill raforkusparnaður mögulegur með LED lömpum

    meira

  • Fyrri hluta árs ræktunartilraunum lokið
    LED lampar gefa góðan árangur

    meira

  • Raforkusparnaður ljósdíóðulampa
    og munurinn á LED og HPS lömpum

    meira

06.10 2010

LED lampar spara um og yfir 50% í raforkunotkun til gróðurhúsalýsingar

Sambærileg eða meiri uppskera möguleg með LED raflýsingu

Fyrstu niðurstöður prófana liggja nú fyrir og gefa væntingar um að draga megi stórlega úr raforkunotkun og þar með rekstrarkostnaði vegna raflýsingar í blóma- og matjurtarækt. Raforkusparnaður LED topplýsingar reyndist vera 49.5% í forræktun á papriku, >54.7% eftir útplöntun á papriku og 48% í rósarækt.
 
Með tilkomu LED topp- og millilýsingar sem Vistvæn Orka ehf er að þróa eru vonir bundnar við að auka megi uppskerumagn og á sama tíma ná verulegum raforkusparnaði í samanburði við HPS gróðurhúsalampa. Millilýsingarlamparnir frá Vistvænni Orku ehf eru þeir einu á markaðnum sem veita 360° lóðrétta raflýsingu fyrir agúrku-, papriku- og tómmatarækt. Með LED millilýsingarlömpunum er hægt að fyrirbyggja vandamál s.s. stílrot og brunaskemmdir sem er fylgifiskur millilýsingar með HPS lömpum.
 
Niðurstöður tilrauna sem fram fóru hjá LBHÍ að Reykjum, Ölfusi eru samhljóma niðurstöðum erlendra háskóla s.s. Wageningen háskólanum í Hollandi, en þar segir: "Production (tomato, bell pepper, rose) under LEDs is comparable or higher than under HPS".
 
Þá má geta þess að LED lýsingartæknin er í síauknum mæli að koma í stað hefðbundinnar lýsingar sem fram að þessu hefur byggst á aldagamalli glóperutækni. þannig standa yfir víða erlendis átaksverkefni sem miða að því að skipta út HPS lömpum fyrir LED lampa í gatna-, göngustíga- og bílastæðalýsingu. hafa þessi verkefni skilað raforkusparnaði sem hleypur á tugum prósenta eða um og yfir 50%.
 
Ennfremur má geta þess að LED ljósdíóðulampar eru mun umhverfisvænni en HPS lampar þar sem LED lampar innihalda ekki kvikasilfur eða aðra þungmálma.
 
Að framansögðu er ljóst að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að hefja þegar innleiðingu á LED ljósdíóðutækninni í orkusparnaðarskyni fyrir blóma- og matjurtarækt hér á landi.
 
Skýrsluna með fyrstu niðurstöðum um raforkusparnað má finna hér
 
Umfjöllun RÚV um sama málefni má svo finna hér
 
 
                      
 
 
 
 
 
Tækniþróunarsjóður styður þetta verkefni
Til baka

Nánari upplýsingar:

Sími: 553-6752 (553-ORKA)
 

Fyrirtækið er í eftirfarandi samtökum: