Fréttir

  • Rósir koma vel undan vetri
    Mikill raforkusparnaður mögulegur með LED lömpum

    meira

  • Fyrri hluta árs ræktunartilraunum lokið
    LED lampar gefa góðan árangur

    meira

  • Raforkusparnaður ljósdíóðulampa
    og munurinn á LED og HPS lömpum

    meira

02.12 2010

Raforkusparnaður ljósdíóðulampa

og munurinn á LED og HPS lömpum

Við höfum fengið fyrirspurnir í tengslum við raforkusparnað ljósdíóðulampa, en þar gætir nokkurs misskilnings sem ber að leiðrétta. Rétt er að HPS lampar hafa enn sem komið er betri ljósnýtni á orkueiningu (lúmen/W) en ljósdíóðulampar. Eins og sést á mynd 1 þá eru HPS lampar komnir að endimörkum tækniþróunar og ljósnýtni þeirra verður ekki meiri en 145 lúmen/W úr þessu. Hins vegar hefur þróun ljósdíóðutækninnar verið geysilega hröð á allra síðustu árum og ljósdíóður farúr því að vera einföld gaumljós yfir í það að vera alvöru ljósgjafar. Tækniþróun ljósdíóða er mjög hröð um þessar mundir og hvergi nærri lokið. Við eigum eftir að sjá ljósnýtni ljósdíóða fyrir almennan markað verða um og yfir 150 lúmen/W mjög fljótlega. Þörfin fyrir nýja orkuminni ljósgjafa á almennan markað mun knýja fram lækkun á verði ljósdíóða með aukinni framleiðslugetu á heimsvísu.

                                                                               Mynd 1.

Spurningin sem brennur á mönnum er hvernig er þá hægt að ná um og yfir 50% raforkusparnaði í blóma- og matjurtarækt ef ljósnýtni ljósdíóðulampa er enn sem komið er lægri en HPS lampa? Ljósnýtnin ein og sér skiptir ekki öllu máli í þessu sambandi. Til að útskýra þetta nánar er nauðsynlegt að bera saman litrófsgeislun þessara mismunandi ljósgjafa við gleypnirófskúrfu blaðgrænu í plöntum, en blaðgrænan hefur með ljóstillífun plantna að gera. Þá kemur í ljós að nýtni ljósdíóðulampa er mun meiri eða allt að 60% þar sem þeir lýsa eingöngu á þeim bylgjulengdum sem nýtist plöntum best þegar kemur að ljóstillífun, vexti og þroska þeirra. M.ö.o. plöntur nýta einungis um 7% af því ljósi sem HPS lampar geisla frá sér yfir litrófið, afgangurinn er hrein orkusóun. Hægt er að nálgast upplýsingar um þessi atriði t.d. hér

 

Á mynd 2 má sjá einfaldan samanburð á þessum lampagerðum í rósarækt og hver er mögulegur raforkusparnaður með ljósdíóðulömpum þegar í dag. Með aukinni ljósnýtni ljósdíóða mun svo raforkusparnaðurinn verða enn meiri í framtíðinni. Unnið er að nákvæmri kostnaðargreiningu á ljósdíóðulömpunum sem Vistvæn Orka ehf er að þróa, en vísbendingar eru í þá átt að þeir muni borga sig upp á 2-3 árum m.v. verðlag í dag og ending þeirra verði ekki skemmri en 7.6 ár (m.v. 18 klst lýsingu á dag). Stefnt er að markaðssetningu ljósdíóðulampanna á árinu 2011.

 

 

                                                      Mynd 2

Til baka

Nánari upplýsingar:

Sími: 553-6752 (553-ORKA)
 

Fyrirtækið er í eftirfarandi samtökum: