Fréttir

  • Rósir koma vel undan vetri
    Mikill raforkusparnaður mögulegur með LED lömpum

    meira

  • Fyrri hluta árs ræktunartilraunum lokið
    LED lampar gefa góðan árangur

    meira

  • Raforkusparnaður ljósdíóðulampa
    og munurinn á LED og HPS lömpum

    meira

07.04 2011

Fyrri hluta árs ræktunartilraunum lokið

LED lampar gefa góðan árangur

Í síðasta mánuði lauk ræktunartilaunum undir LED ljósdíóðulömpum með góðum árangri. Um var að ræða forræktun á agúrku, tómötum og papriku auk ræktunartilrauna á salati. Eftirfarandi má sjá þau yrki sem urðu fyrir valinu og ræktunartíma frá sáningu og þar til tilbúin til útplöntunar/uppskeru:
 
Agúrka (Naomi), 4-vikur.
Tómatar (Geysir), 6-vikur.
Paprika (Viper og Ferrari), 8-vikur sem er sami forræktunartími og í sambærilegri ræktunartilraun (Ferrari) fyrir ári.
Blaðsalat og höfuðsalat (Lactuca sativa) frá nokkrum framleiðendum, 6-7 vikur að uppskeru. Útlits- og bragðgæði salatsins reyndust mjög góð.
 
Hér má sjá nokkrar myndir úr ræktunartilrauninni. Notast var við þrjár gerðir af LED lömpum með mismunandi hlutfall af rauðu og bláu ljósi. Engin kolsýra var gefin á ræktunartímanum. Ræktunartilraunin sýndi að hæfileg blanda af bláu ljósi með rauðu ljósi gefur bestan árangur. Í öllum tilvikum var raforkusparnaður um 49% m.v. HPS lampa, en ljósmagn var ákvarðað út frá hæð LED lampanna frá plöntunum.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Tækniþróunarsjóður styður þetta verkefni
 
Til baka

Nánari upplýsingar:

Sími: 553-6752 (553-ORKA)
 

Fyrirtækið er í eftirfarandi samtökum: