11.04 2011
Rósir koma vel undan vetri
Mikill raforkusparnaður mögulegur með LED lömpum
Rósarækt sem hófst í ágústmánuði í fyrra miðar vel áfram og eru plönturnar að koma vel undan vetri. Um er að ræða rósir af ýmsum tegundum og litaafbrigðum. Verkefnið hófst með ræktun á græðlingum sem var síðan pottað í tveggja raða beð í desember s.l. Lýst hefur verið með LED lömpum í vetur, 20 klst á sólarhring með einungis 57W/m2 uppsettu afli (uppsett raunafl). Engin kolsýra var gefin á ræktunartímanum fyrr en í mars að búnaður var tengdur.
Í tilefni af opnu húsi hjá LBHÍ að Reykjum í Ölfusi laugardaginn 16. apríl, mun fyrirtækið sýna afrakstur ræktunarstarfsins og kynna í leiðinni nýja LED lampa sem fyrirtækið stefnir á að markaðssetja á þessu ári. Kynningin hefst kl 13:00 og verður í klefa 9 í tilraunagróðurhúsi LBHÍ að Reykjum.


Tækniþróunarsjóður styður þetta verkefni





