LED ljósdíóðulampar og straumstýringar
Vistvæn Orka ehf er hátækni sprotafyrirtæki með áherslu á þróun og markaðssetningu á orkusparandi LED (Light Emitting Diode) ljósdíóðulömpum og straumstýringum fyrir eftirfarandi þrjú meginsvið:
- Ylrækt
- Orkulíftækni
- Líftækni
Fyrirtækið leggur áherslu á gæði vörunnar og að hún uppfylli ströngustu kröfur um áræðanleika og endingartíma. Fyrirtækið getur boðið margvíslegar lausnir fyrir mismunandi aðstæður og veitir tæknilega aðstoð við innleiðingu LED ljósdíóðutækninnar, eða allt frá þróun hugmynda til uppsetninga á búnaði.
Eins og nafnið gefur til kynna þá leggur fyrirtækið mikla áherslu á vistvænar lausnir sem nýta okkar endurnýjanlegu orkugjafa á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.






