Fréttir

  • Rósir koma vel undan vetri
    Mikill raforkusparnaður mögulegur með LED lömpum

    meira

  • Fyrri hluta árs ræktunartilraunum lokið
    LED lampar gefa góðan árangur

    meira

  • Raforkusparnaður ljósdíóðulampa
    og munurinn á LED og HPS lömpum

    meira

Líftækni
 
 
Líftækni er vaxandi og fjölbreytt atvinnugrein sem fæst við hagnýtingu vísindalegrar þekkingar á sviði lífvísinda þar sem frumur eða örverur eru notaðar til að leysa vandamál eða framleiða afurðir.
 
Vistvæn Orka ehf hefur þróað vörulínu sem nefnd hefur verið LED-IT-GrowTM og stendur fyrir “Light Emitting Diodes and Information Technology to Grow biomass.” Með LED-IT-GrowTM er upplýsingatæknin og LED ljósdíóðutæknin tvinnuð saman sem gerir mögulegt að stýra öllum þáttum lýsingar við ræktun og framleiðslu lífmassa úr smáþörungum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
 
 
 
 
NZγLTM
 
Með NZγLTM (Near Zero γ-photon Loss) tækninni er mögulegt að hámarka vaxtarhraða smáþörunga með því að staðsetja ljósdíóður og kælingu þeirra innan í ljósræktunarkerfi (photobioreactor) smáþörunga. Þannig er einnig hægt að ná hámarks ljósnýtni og mestum orkusparnaði.
 
Vistvæn Orka ehf hefur þróað (og sótt um einkaleyfi á) sinni eigin kælilaðferð sem byggir á því að nýta kalt vatn til að kæla ljósdíóðurnar í LED ljósdíóðulömpunum.
 
 
VO2000
 
VO2000 straumstýribúnaðurinn hefur þann kost  að  geta stýrt miklu ljósmagni, lotuhlutfalli (duty-cycle) og tíðni ljóspúlsa frá ljósdíóðum sem er mikilvægur  eiginleiki og jafnframt nauðsynlegur þáttur í því að geta hámarkað vöxt og uppskeru smáþörunga.
 
 
Afurðir úr smáþörungum
 
Fjölmargar verðmætar afurðir er hægt að framleiða úr smáþörungum, sbr. skýringarmynd hér fyrir neðan:
 

 
Þar sem náttúruleg sólargeislun er með minnsta móti hér á landi verður ekki hjá því komist að horfa til ljósdíóðutækninnar og kosta hennar umfram aðra ljósgjafa þegar kemur að smáþörungarækt og framleiðslu verðmætra afurða úr þeim.
 
 
 

Nánari upplýsingar:

Sími: 553-6752 (553-ORKA)
 

Fyrirtækið er í eftirfarandi samtökum: